Margrét Sæný

28.08.2009 01:18:39 / kleopatra

blogg að gamni gert

 

Já ég mundi skyndilega eftir blooggsíðunni minni, og ákvað í tilefni þess að skrifa eitthvað rugl hérna:

http://createwithnate.com/wp-content/uploads/2009/03/bullshit1.jpg



það sem mér dettur fyrst í hug er að ég er að flytja úr Grafarholtinu mér til mikillar gleði og allaleið niður eftir í Vesturbæ, þar mun ég fara í litla stúdentaíbúð sem er í næstu götu við eina af háskólabyggingunum sem ég mun fyllast upp af visku í, og ekki skemmir fyrir að Vesturbæjarísbúðin er stödd við hliðiná mér, og mun ég án efa notfæra mér það til hins ítrasta, því sá gamli er mjög góður fyrir bragðlaukana.

Þess næst er að segja frá að skólinn er handan við hornið, og það vekur upp gleðikenndir :) því bekkjafélagar mínir eru sérlega skemmtilegir, og námið er líka hin besta skemmtun og við skulum ekki gleyma frábæru stundunum sem Þjóðarbókhlaðan hefur veitt mér.

En frá öðru er að segja að ég var að vinna í Lyfja Lágmúla mestmegnis í sumar, auk nokkurra aukavakta hist og hér, en aðallega var ég þó í Lágmúlanum, það er ansi stórt batterí en þó er hið besta fólk að finna þar, ekki vil ég nefna hver er frábærastur í þessu samhengi því þá verða slagsmál, svo ég læt það vera að þessu sinni...


en frá sumrinu er heilmikið að segja sem ég ætla ekki að telja upp hér nema í aðalatriðum, fyrst og fremst var ég á Austurvelli, þar var ávallt gott veður, sat þar, sólaði mig og fylgdist með mannlífinu, ýmist eftir vinnu eða um helgar þegar ég var ekki stödd í öðrum landshlutum.hitti m.a Ásdísi elskuna og fór líka á Neistaflug sem var svaðalegt stuð, og þá má nefna að Elsa mín kom til landsins og joinaði, bara skemmtilegt!


http://photos-f.ak.fbcdn.net/hphotos-ak-snc1/hs166.snc1/6214_104441645683_618595683_2600869_7624590_n.jpg


http://photos-c.ak.fbcdn.net/hphotos-ak-snc1/hs137.snc1/5853_235642915211_841700211_8311466_3254960_n.jpg


en á döfinni eru: blómstandi dagar hmm.. ljósanótt klárlega, vísindaferðir... annað er ekki ákveðið, enda er ekki gott að ákveða hluti of snemma því ekki viljum við verða fyrir vonbrigðum!!  svo það gerist sem mun gerast hvort sem okkur líkar það eða ekki lömbin mín.

en nóg af þessu ég er farin á fésbók.




» 0 hafa sagt sína skoðun

19.11.2008 14:01:26 / kleopatra

prófaundirbúningur og eitthvað

jæja ég er ekki búin að vera heimsins besti bloggari undanfarið en ég er lifandi :haha:

Er rosa gaman í skólanum, soldið mikill lærdómur en það er nú allt í fínu lagi.

vikurnar líða þannig að skóli er virka daga, smá vinna um helga og stundum er kíkt út á lífið.. er reyndar ekki búin að vera neitt svakalega dugleg í vísindaferðunum með skólanum en er þó búin að fara í alveg eina vísindaferð og svo nýnemajammið og það var ferlega gaman!

þarsíðustu helgi var seldalshittingur í tilefni þess að Filip frændi kom í heimsókn, var svakalegt stuð, fórum svo öll í grímubúningapartý heim til Ólafs Arnars.  Svo aftur núna síðustu helgi.. byrjaði á teiti hjá Guðbjörgu og Höskuldi og endaði á tjúttinu niðrí bæ, svaka gaman!

núna er kellan bara að læra fyrir próf, verklegu tímarnir eru búnir og er það heilmikill léttir á náminu, það var svakaleg vinnar úfff..

síðan eru mamma og pabbi búin að panta far fyrir okkur systurnar austur og kem ég 22. des og verð til 11 jan. hlakka mikið til.. sakna þeirra og litla brós, og kisu minnar það verður gaman að hitta hana! og ekki má gleyma vinkonunum sem eru flestar í firðinum fagra, hef mest lítið hitt þær frá því ég fór suður :(

jájá vildi bara láta vita af mér.. hver veit hvenær næsta blogg verður :)

» 2 hafa sagt sína skoðun

18.08.2008 22:40:17 / kleopatra

Franskir dagar..

Við fórum á franska daga, Ég, Védís, Kolbrún, Reynir, Hrefna, Halldór, Matta, Sóley og Sigríður Inga.

Byrjaði með brekkugeimi með Daníeli Geir í farabroddi, sem endaði svo með flugeldasýningu, og eftir það héldum við í smá heimsókn heim til Reynis og svo á barinn, var fínasta skemmtun..



» 1 hafa sagt sína skoðun

21.07.2008 22:46:20 / kleopatra

Útilegan og Wilson rockness ball á Egs.

Jájájájá
við stúlkurnar skelltum okkur í útilegu, keyrðum á föstudaginn eftir vinnu á Eskifjörð og stoppuðum þar á nýja kaffihúsinu og fengum okkur í gogginn, það var bara ferlega skemmtilegt og góður matur..


http://deco-01.slide.com/r/1/100/dl/iLBoQnoL6j999NsHhb95YbLR0gh6D1km/item


svo eftir matinn var ekkert annað í stöðunni heldur en að fara á sjoppuna og taka bensín, fékk skódan hjá pabba og mömmu lánaðan síðan var ég eitthvað utan við mig og dældi BENSÍNI á bílinn sem var by the way díselbíll :$ fattaði það ekki fyrr en bíllinn drap á sér við hina bensínstöðina.. gúgú!


http://deco-00.slide.com/r/1/100/dl/EklzaHHZ1j-U7FRz_SLWfje-tEcJHlgw/item


en lögginn kom og hjálpaði okkur og hringdi út menn, þeir í Heklu voru svo almennilegir að redda málunum á nó time takk takk  strákar :)


http://deco-00.slide.com/r/1/100/dl/FDKoRy1lzD-PgPkod7PgiGeyjQl8OqMZ/item


eftir það var haldið upp í Atlavík og tjaldað, spilað smá og komið sér í háttinn, morgunin eftir færðum við okkur yfir á Egilsstaði því stefnan var að fara á Wilson Rockness ball í Valaskjálf um kvöldið, fórum í sund og kíktum í búðir, var rosa gott veður, síðan grilluðum við og héldum gítarpartý í nýja risastóra tjaldinu hennar Hrefnu.


http://deco-00.slide.com/r/1/159/dl/YIivesfa6z8eNfAJjynH5oLmp7fjxdwP/item

Eftir það tókum við okkur til á salerninu á tjaldstæðinu, mjög fín aðstaðan þar, og skundað á dansiball og var þar mikil gleði og gaman, endaði á eftirpartýji og svo var komið sér í tjaldið góða undir morgun í sólinni.


http://deco-01.slide.com/r/1/159/dl/zAyJCQbA3T-_lUt2W-5gHQS00Q0Ikpqr/item


jájájájájá

HÉRNA eru myndirnar

so sorry Þórfríður mín, ég nenni ekki að finna eitthvað annað myndaforrit :)

enjoy...




» 4 hafa sagt sína skoðun

10.07.2008 22:35:40 / kleopatra

var að velta einu fyrir mér...

ég var að spá hvort fólk sé að sækjast eftir því að fá að sjá djamm-myndirnar, þar sem ég og mínar píur erum alltaf á réttum stað á réttum tíma með myndavélina???

nenni samt varla að standa í því, en þetta var samt sem áður pæling...

á ég að taka aftur upp þann sið að smella myndunum auðvitað ritskoðuðum á bloggið?
ef einhver tjáir sig um þetta málefni hérna þá skoða ég málið :)


» 4 hafa sagt sína skoðun

30.06.2008 23:23:16 / kleopatra

Stelpu/konu/kvenna - dagur

jæja þá eru þær stöllur Hrefna og Sóley búnar að gera þetta stórfengna og frábæra plan fyrir laugardaginn næsta 5 júlí sem er einungis ætlað kvennfólki í þessum bæ og nærliggjandi krummaskuðum,

árgangur 1990 og uppúr eru boðnir í þetta teiti sem engin má missa af.

svo ég vitni bara í póstinn sem Hrefna sendi á ofurhraða um netheimana í dag



"Í stuttu máli:
 
Markmið: Skemmta sér og öðrum.
Mæting: 5.júlí 2008, klukkan 17.00 við sundlaug Neskaupstaðar.
Kostnaður: Um 3000 kr. (Innifalið: leikur, veigar, pítsur og salur)
VelkomnirÁrgangur 1990 og eldri árgangar en skilyrði að vera dóttir, systir, mamma eða amma
Skráning: Fyrir hádegi á fimmtudag 3.júlí
Fjöldi: Takmarkast við stærð salar sem ætti að geta rúmað vel 30 manns.
Spáin er mjög góð... "




stórgott framtak verð ég nú að segja, svo núna er um að gera er að láta hendur standa fram úr ermum og rífa sig upp á rassgatinu og skilja karlpeningana eftir heima og halda á vit ævintýranna jibbííííí :haha:

skráningar sendist á hrefna.vignisdottir@alcoa.com eða soley.thordardottir@alcoa.com  
þegar er skráður hópur þá vinsamlegast látið e-mailin hjá hverri og einni fylgja með :þ 


» 1 hafa sagt sína skoðun

27.06.2008 16:46:50 / kleopatra

nennir fólk ennþá að kíkja á síðuna :)

jæja ég er ekki búin að vera sú duglegasta að blogga hérna í bloggheiminum, en gaman að sjá að það eru alltaf einhverjar heimsóknir á degi hverjum :)
ég er semsagt búin að vera tölvulaus í soldinn tíma svo það kemur kanski eitt gott blogg eða svo þegar ég fæ tölvuna mína,
annars er á döfinni að halda mega stelpukvöld og það verður auglýst hérna síðar ííhaaa ;)

þarngað til....

» 0 hafa sagt sína skoðun

28.05.2008 22:06:19 / kleopatra

Reykjarvíkurdvölinni lokið í bili...

þá er Reykjarvíkurdvöl minni að ljúka í bili, seinasti vinnudagurinn minn var í dag.. knúsaði alveg heilan tug af skvísum úr vinnunni þangað til næst, svo vitiði númerið mitt ef þið verðið eitthvað á ferðinni um austurlandið 8)

svo er bara frí á morgun og dekurdagur, fer í hár og fíniseringu í fyrramálið úúje, svo er ég búin að fara í búðarleiðangur til að safna fötum í sarpinn fyrir sumarið, svo keyrum við Guðjón austur á föstudaginn til að ná sjómannadagshelginni, það verður gaman :d 

síðan verð ég fyrir austan í sumar, ekki það að ég hefði ekki frekar viljað vera hérna áfram, en ég kem aftur suður í skóla í haust, er búin að fá inn í lyfjafræðina þannig að ég er mjög spennt yfir því :haha:

ég hlakka til helgarinnar, frétti að það yrðu 4 árgangar að halda bekkjamót svo það verður eflaust mikið líf og fjör í bænum úúúje

svo langaði mér að óska Þórfríði minni til hamingju með afmælið, eins og ég sagði henni þá er hún eins og ostur.. verður bara betri með tímanum ;)

sjáumst...


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.04.2008 13:29:13 / kleopatra

Ég er komin heim...

í heiðardalinn, ég er komin heim með slitna skó...

já ég er stödd í Nesk city því hún langaamma mín Sigrún úr Seldal er 90 ára og fólk kemur allstaðar að úr heiminum til að koma í ammælis :)

það er frekar brjálað flugið í gær svo við systur vorum frekar þreyttar eftir ferðalagið í gærkvöldi og vorum bara heima í rólegheitum.

svo er spurning hvað verður gert sér til skemmtunar :haha: verðum hérna fram á sunnudagskvöld.

jæja er að fara í íþróttahúsið að spila blak, úúúje

» 3 hafa sagt sína skoðun

17.04.2008 21:16:46 / kleopatra

páskamyndir

jæja þessi síða mín er bara við það að fara að deyja, ég hef ekkert nennt að blogga undanfarnar vikur :$

en ég ætla að henda inn myndunum af fyrsta ballinu á Nesk um páskana, ykkur til mikillar gleði væntanlega :)

Páskamyndir ball nr 1

» 1 hafa sagt sína skoðun

17.03.2008 17:55:11 / kleopatra

Óvissuferð óttans

Þá er komin tími á að skrifa um óvissuferð Technis sem var í febrúar.

 

Ferðin hófst við HR þar sem allir fóru upp í rútu og lögðu af stað í “óvissuferð óttans”, fólkið vissi ekki hvert ferðinni var heitið (nema ég.. smá innherja-upplýsingar hehe) né á hverju var von því titill ferðarinnar gaf ekki mikið til kynna, nema óttans og var erfitt að greina hvað það gæti verið. 

 

Svo eftir dágóða keyrslu kom í ljós að við vorum að fara í paintball, svæðið var í straumsvík og er alveg tilvalið fyrir þetta sport, fjara og alles þarna. EN allavega þá stauluðust allir úr rútunni og fóru inn í kofann til að finna sér búninga og grímur og fá sköffuð skot í byssurnar, svo byrjaði fjörið.. skipt var í tvö lið og voru teknir 8 leikir.  Þetta var hið mesta fjör og adrenalínið fór aðeins á stað þar sem fólkið lá og skreið í drullunni og lifði sig inn í leikinn, því miður tapaði liðið sem við Sóley vorum í, en við förum bara fram á endurtekningu einn daginn ;)

          http://deco-00.slide.com/r/1/61/dl/IC5oOBnlnj9J4MiMGuJgWF16l8ovd39R/item

Svo var farið aftur upp í rútu eftir 2 klst málningarbolta, allir blautir og sveittir, og þá var ekkert annað í stöðunni en að opna einn kaldan.. eða tvo svo áður en við vissum þá vorum við komin á the blue lagoon takk fyrir, ekki slæmt það J

Fórum við inn og fengum okkur í gogginn og eftir það var haldið ofaní pollinn og haft það VERY nice, kom meira segja heitur þjónn í sundbol ofaní, með drykki handa liðinu.

          http://deco-01.slide.com/r/1/61/dl/iOGjNZROuj_rG7ohvxKAAdhPIZK5RJon/item

Eftir bláa lónið shænaði liðið sig upp og fór aftur í rútuna og þá var ferðinni heitið í Njarðvík.. já Njarðvík J við fórum á veitingastað þar og fengum mat og eftir matinn gerðist brjálað partý og matsalurinn varð að dansgólfi, þetta var mikil gleði og ótrúlega skemmtilegt, við tjúttuðum fram á kvöld og þá fórum við aftur í borgina þar sem sumir fóru niðrí bæ og aðrir heim til sín.

          http://item.slide.com/r/1/61/i/AwNttPyZ5T_4XRV0ZcoF4mtYi0wQNMmG/

Þetta var snilldar óvissuferð, HÉRNA eru nokkrar myndir .. tók reyndar flestar af technis síðunni en hérna eru þær.


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.03.2008 18:18:52 / kleopatra

Klifurhúsið

jæja ég er ekki að nenna að blogga þessa dagana :$

en allavega ætla að henda inn myndunum af klifurhúsinu, við fórum sem sagt nokkur úr vinnunni og Kolbrún systir og fórum að klifra, það var mjög skemmtilegt, mæli með því :) en við gáfumst samt upp eftir hálftíma því þetta reynir svo geðveikt á hendurnar.. var samt með harðsperrur í maganum, rassinum og löppunum líka úffff

ennn HÉRNA eru myndirnar úr klifurhúsinu.

http://deco-00.slide.com/r/1/218/dl/oAxjbyIWyz_dDzJ3pp1cBa6mdPnh0bqK/item


» 2 hafa sagt sína skoðun

22.02.2008 02:08:33 / kleopatra

Löggulíf og fleira.

Eitt laugardagskvöldið fórum við píurnar út á lífið, ég náði í Sóleyju, Sögu og Védísi heim til mín, því planið var að hafa smá hitting hjá mér áður en við færum í bæinn. Hrefna Rún var komin til RVK í ferð með vinnufélögunum, flestir ef ekki allir enskir gaurar sem eru að vinna með henni... en allavega þá vildi hún að við myndum drífa okkur niðrí bæ sem allra fyrst svo við drifum okkur bara niður eftir, en á leiðinni niðrí bæ lætur löggann bara á mig ljósin og læti og stoppar mig á Miklubrautinni og ég bara shit hvað var ég að gera??? Og haldiði ekki að þessi svakalega sæti löggi komi og byðji mig um að sýna skírteinið og ég gerði það og svo átti ég koma að ræða við hann inn í bíl, og stelpurnar steinþögðu .. ég bara úfff og elti sæta löggann inn í löggubílinn þar sem annar gamall löggi sat við stýri, þá átti ég að blása og eftirfarandi samtal átti sér stað:


gamli lögginn: eru búin að drekka áfengi í kvöld?

Margrét: Nei

gamli lögginn: Vinsamlegast blástu í rörið (og rétti það aftur í)

Margrét: já (svo ætlaði ég að rífa þetta af honum og blása í það)

gamli lögginn: NEI, ég skal halda í það

Margrét: ok (og teygði mig fram í og blés ógsl fast)

gamli lögginn: Ekki svona fast

Margrét: (blés mjög laust)

gamli lögginn: aðeins fastar

Margrét: (blés aðeins fastar.. hugsaði “ohhh þetta fer nú að verða pínu vandræðalegt””)

gamli lögginn: ekki svona stutt, aðeins lengur.

Margrét: (úffff og blés aðeins lengur.. en miðlungs fast)

 

Svo sýndi mælirinn aðvitað ekkert..



gamli lögginn: jæja það virðist allt vera í lagi hérna, þetta er bara reglubundið tékk

Sæti lögginn: hafðu það gott J

Margrét: sömuleiðis (og skellti hurðinni á eftir mér)

 

Svo kem ég inn í bílinn og eftir farandi samtal átti sér stað:



Stelpurnar: hvað var að?

Margrét: þeir létu mig bara blása, og það var allt í fínu lagi bara.

Saga: ég sagði bara við stelpurnar þegar þú fórst inn í löggubílinn, ef hún verður
látin í fangelsi þá förum við sko MEÐ hahaha..

Sóley: jáááHááááá hahahaha...

Védís: hahahaha...

Allar stelpurnar í bílnum: hann var ekkert smá flottur.. hann hefði alveg mátt handjárna mig sko... alveg í þröngum búning og allt... heiti gaur... hann hefði allt eins getað verið strippari í löggubúning á leiðinni í gæsapartý, hann var svo heitur úfff...

 

Hvaða lærdóm má draga af þessari sögu?    Ekki mikin... en allavega, víst löggann fann þá miklu þörf til að stoppa mig þá var eins gott að það var þessu gaur, má alveg stoppa okkur allar aftur  ;)



Svo fórum við á Hressó að hitta Hrefnu og co, og var það bara skemmtilegasta kvöld J
Hérna eru 10 myndir eða svo J, var nú ekki svo gáfuleg að taka mynd af sæta lögganum, hefði kanski ekki verið sérlega vinsælt hahaha..  


---->  en nenni ekki að setja meira inn í bili, kanski á morgun.. því ég á eftir að setja inn óvissuferð HR sem ég fór í seinustu helgi og ferðina í klifurhúsið ofl ofl ofl :)
 

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

11.02.2008 13:42:51 / kleopatra

Borgarlífið

jæja jæja jæja.. Ég er bara farin að kunna mjög vel við mig hérna í borginni, er alltaf að bralla eitthvað :) 

 

Ég fór í mat til Bjarna og Védísar fyrir þremur helgum síðan, fékk ljúffenga pizzu og með því.. svo var tekin Buzz leikur sem Bjarni vann með eindæmum 8| og eftir það var kíkt í keilu.. sem Bjarni vann með eindæmum AFTUR :haha: tekin smá pool og kíkt niðrí bæ. Þar hittum við Ármann og Ómar og kíktum við öll saman á barinn, þar var skrítið lið svo við entumst ekki lengi þar, Ármann og Ómar fóru eitthvert annað og við hin kíktum á Hressó, voru þar sérlega skemmtilegir tónleikar, salsa tónleikar ALVÖRU life og alles.. mjög skemmtilegt! svo fórum við bara heim eftir þá.

 

 

Næstu helgi var haldið spilakvöld heima hjá Sóleyjunni og komu Védís og Bjarni með partý og co, Gauji og Hrafn mættu galvaskir, Jakob, Gissur og Eldjárn bættust svo í hópinn og svo auðvitað vorum við Kolbrún og Sóley á staðnum :) þetta var hið skemmtilegasta kvöld sem endaði svo með gítarpartýi þar sem Eldjárn frændi stóð sig eins og hetja við að rappa og spinna upp texta á staðnum, nánast með réttum stuðlum, höfuðstöfum og auðvitað rími :haha: bara sjúkt flott! fórum svo niðrí bæ og tjúttuðum fram í rauðan dauðann.

   

Hérna eru myndirnar af spilakveldinu góða.

 

 

Á fimmtudaginn síðasta fórum við nokkur á tónleika með Hlyni Ben á Gauknum, meðal annars voru Hraun og Múgsefjun að spila og það var svoooo gaman, bara snilld að hlusta á þá :) og voru þarna nokkrir nobbarar á ferð..en ekki hvað þegar Hlynur nokkur Ben er að skemmta.  þetta er pottþétt eitthvað sem ég ætla að gera oftar, að fara á tónleika.. ekkert smá gaman :P

 

Hérna er Hlynur að spila

Hérna eru nokkrar myndir af tónleikunum.

 

 

Seinustu helgi fór ég á Grímuball HR á Broadway og var snarklikkað veður, en við létum það nú ekkert stoppa okkur.. Ég var að vinna til 19 og var ferðinni þá heitið beint til Sóleyju.  Hrafn, skiptinemapían og Gauji komu líka þangað að taka sig til, eftir allt meikup og fínerí vorum við orðin allsvaðalega flott, þá vorum við geim til að fara niður eftir á grímuballið.  Gauji var Jack Sparrow, Hrafn var prestur, skiptinemin var nunna, Sóley var svissnesk pía og ég var skólastúlka... ógsl flott öllsaman :haha: Á ballinu var eintóm gleði, var fullt af flottum búningum og frábær salur, var bara gaman í alla staði.. eftir ballið var brjálaður stormur úti svo við hunskuðumst nú bara heim á leið, nenntum ekki að fara niðrí bæ!

  

Hérna eru myndirnar af Grímuballinu.

 

jæja meika ekki að blogga meira í bili.. þangað til næst :)

 

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

25.01.2008 13:45:13 / kleopatra

Myndir, myndir... og myndir

jæja þá er ég búin að fara yfir myndirnar frá þvi í Desember og Janúar og hlaða þeim inn, svo hérna kemur slatti :)

við hittumst nokkrum sinnum heima hjá mér að til að gera okkur glaðan dag yfir jólin og oftar en ekki var tekið í gítarana og spilað og sungið, alltaf jafn gaman :haha: svo var líka spilað pictionary eitt kvöldið og endað niðrí Egilsbúð í "hristum andlitið og verum asnaleg á myndum" keppni :$ ég held að ég hafi haft vinninginn þar hahaha..  

Hérna eru myndirnar.

Svo eru nokkrar áramótamyndir hérna, en Kolbrún siss var í útlandinu með Reyni og famelíunni, svo við vorum bara fjögur í kotinu.. var leiðinlegt veður en skyndilega hætti að snjóa og vindinn lægði á miðnætti og stóð það yfir í svona 15 mín, svo allir fóru út að skjóta eins og þeir ættu lífið að leysa. eftir það tókum við rúnt um bæinn og fórum upp á varnagarða að horfa yfir bæinn og var fallegt að horfa yfir fjörðinn allann uppljómaðan af flugeldum.  Svo fór ég til Ásdísar og famelíu eftir það og Saga líka svo sameinuðumst við píurnar á ball eftir það, vorum reyndar mislengi á ballinu en hvað um það ;)

hérna eru nokkrar myndir, ekki margar.

 

Svo eignuðust Unnar Þór frændi minn og Heiðrún stúlku og fórum við systur í heimsókn til þeirra, alveg yndisleg stelpa.. við vorum í rúman klukkutíma og ég hélt á henni eiginlega allann tímann og hún var bara vakandi að skoða mig og ofsalega þæg og góð.. yndislegt :)

Hérna er Kolbrún siss með skvísuna

 

Svo var ég svo heppin að lenda í enn einni vörutalningunni hérna í smáratorginu, var búin að telja líka á fjörðunum heima, hélt að ég væri nú sloppin ennn nei :) en það er allt í lagi því það var mikið stuð og það vildi svo heppilega til að ég var með myndavélina í töskunni híhíhí

Hérna eru myndirnar af litlu skvís og talningunni.

 

Svo var farið á hið árlega sjóv á Broadway, fórum við Kolbrún, Reynir og Sóley og hittum Sigríði Ingu, Jónu frænku og Jakob og fleiri nobbara þar, var þetta skemmtilegt sjóv og öðruvísi en sjóv seinustu ára og var bara eintóm gleði með það, ég tók ógó fáar myndir þar sem myndavélin mín var að verða batteríslaus..

  

 

Svo fór ég í teiti til Hrefnu því pían var að útskrifast sem iðnaðartæknifræðingur, ekkert smá dugleg :haha: var teitið haldið hjá Pabba hennar þar sem famelían var og aðrir vel valdir vinir, vorum við þar fram á nóttina og svo var haldið niðrí bæ þar sem var jammað fram undir morgun, reyndar fór Hrefna ekki með því hún var uppgefin eftir erfiðan dag!

Hérna eru útskrifarmærin með píunum

Hérna eru myndirnar frá Broadway og útskriftinni.


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8
Heimsóknir
Í dag:  0  Alls: 39531
Klukkan